Við höfum hátt í 20 ára reynslu af hestaferðum.
Margir ferðamenn koma til okkar annað til þriðja hvert ár og þeir alhörðustu koma á hverju ári. Leitast er við að hafa ferðirnar líkastar því að vinahópur Íslendinga sé á ferð og ríður hver ferðamaður allt að 15 mismunandi hestum í lengri ferðunum.
Ferðir 2010:
Rautt er uppselt
Þingvellir - Hringferð
21.- 29. june, 20.- 28. july, 12. - 19. ágúst
Snæfellsnes - Löngufjörur
4.- 11. july, 11.- 19. july, 29. july - 5. august, 5.- 13. august
Jöklar og Snorraslóð
19. - 26. ágúst
Réttarferð
10. - 17. september
Skipuleggjum einnig sérferðir um Ísland eftir óskum hópa.
Í lengri ferðunum eru 2-3 hross á mann og því er stærri hluti hrossana rekinn hverju sinni, en til að passa reksturinn þá ríður hluti hópsins á undan rekstrinum en hinn hlutinn á eftir. Í styttri ferðunum eru aukahross oftast teymd af starfsmönnum og ferðamönnum ef þeir óska þess.