Við leggjum metnað okkar á að eiga góða hesta,
sérstaklega hvað varðar vilja, geðslag og mýkt á tölti, ásamt því að þau hæfi bæði byrjendum og reyndum knöpum. Myndir af reiðhestum
Á vorin eftir vetrarlangt frí, eru hestarnir þjálfaðir fyrir ferðir sumarsins og eftir haustsmalamennskur fá þau aftur frí út í frjálsri náttúru Íslands. Í desember fara þau að tínast heim og fara þá á fulla heygjöf í skjóli fram á vor. Með þessum hætti viðhelst frelsi hrossanna , enda er markmið okkar að njóta sem best samvistanna með ferðafólki og hrossum yfir sumarið.